Heilsuefling
Streitustjórnun
Inni í sprettinum eru nokkur stutt fjölbreytt námskeið sem öll eiga það sameiginlegt að hjálpa þér að vinna gegn stressi.
Ert þú í vandræðum með að ná tökum á stressi í kringum þig, bæði þínu innra stressi í taugakerfinu þínu eða því stressi sem þú verður fyrir í því áreiti sem þú ert í dags daglega? Þá er þessi streitustjórnunarsprettur hannaður fyrir þig og það sem þig vantar. Inni í sprettinum eru nokkur stutt fjölbreytt námskeið sem öll eiga það sameiginlegt að hjálpa þér að vinna gegn stressi.
Námskeiðin í sprettinum eru eftirfarandi:
Hugleiðsla með Bjarney.
Fyrir hvern?
Efni þessa spretts hentar fyrir allt starfsfólk sem langar að fræðast um streitu og hvar gott er að byrja þegar örlar á hækkandi stressi í umhverfinu.
Heildarlengd: 76 mínútur.
TILBOÐ í maí!
Árs áskrift af öllum yfir 150 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir er með meistaragráðu í Félags- og vinnusálfræði og hefur unnið sem ráðgjafi og handleiðari frá árinu 2010.
Ragnheiður Guðfinna starfar nú sem sérfræðingur í sálfélagslegri vinnuvernd og ráðgjafi fyrir stjórnendur, í huglægum- og félagslegum áhættuþáttum innan vinnustaða. Hún hefur getið sér gott orðspor sem frábær fyrirlesari og leggur áherslu á fræðslu um streitu, kulnun, samskiptastreitu og tilfinningagreind stjórnenda.
Ragnheiður Guðfinna starfar jafnframt sem ráðgjafi og leiðbeinir einstaklingum varðandi heilbrigði hugar og líkama. Hún vekur athygli á hvernig einstaklingar geta bætt heilsu sína með að taka ábyrgð á eigin líðan og hegðun.
Ragnheiður er með kennsluréttindi í fræðslu og mælingum þegar kemur að sálfélagslegri vinnuvernd.
Indíana Nanna Jóhannsdóttir
Indíana Nanna Jóhannsdóttir er stofnandi og yfirþjálfari GoMove Iceland. Hún býr yfir mikilli og fjölbreyttri reynslu í hóp- og fjarþjálfun, er viðurkenndur markþjálfi og hefur gefið út bókina Fjarþjálfun.
Indíana Nanna er með BA í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Tolli Morthens er menntaður myndlistarmaður frá MHÍ 1983 og Hocshule der Kunste Berlin 1985, og starfar sem slíkur.
Tolli hefur iðkað Buddisma og Núvitundarhugleiðslu frá 2004 og kennt og leitt hugleiðslu í fangelsum landsins í um 17 ár. Hann hefur leitt tvær nefndir fyrir Félagsmálaráðuneytið, með þátttöku annara ráðuneyta, um úrbætur fyrir skjólstæðinga Fangelsismálastofnunar.
Tolli er reynslumikill fyrirlesari, hann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um hugleiðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir eins og Íslandsbanka, Vodafone, Bónus og fleiri.
Dr. Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum.
Erla hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á svefni og svefnvanda og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns.
Andri er heilsuþjálfi og stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð þar sem áherslan er lögð á að miðla ávinningi kuldameðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða.
Eftir að hafa notið innblásturs af beinni kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að helsta úrræði þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að dýpka skilning sinn á öndun, ögra gömlum skoðanamynstrum og fara ofan í ískalt vatn. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til að ná stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að finna innri kyrrð í auga stormsins.